Bæring býður sig á Bessastaði

Bæring Ólafsson, fyrrum forstjóri og framkvæmdastjóri Coca Cola International, hefur ákveðið að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bæring þar sem segir að hann telji reynslu sína, þekkingu og kraft, jafnt af erlendum og innlendum vettvangi, muni koma að góðu gagni fyrir þjóðina. Honum finnist þjóðin þurfa á að halda sterkum og reyndum leiðtoga sem sé heiðarlegur, hæfur, traustur og óháður. Hann muni kappkosta að hlusta ætíð á þjóðina og hafa hagsmuni hennar að leiðarljósi.

Bæring telur að forseti Íslands eigi að vera óháður stjórnmálaöflum og hagsmunasamtökum svo að hann geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir sem varða hagsmuni þjóðarinnar,“ segir í tilkynningunni.

„Sem forseti Íslands mun Bæring beita sér fyrir að styðja aukið lýðræði, hvetja ungt fólk til aukinnar menntunar og nýsköpunar, stuðla að öflugu menningarlífi, styðja og styrkja heilbrigðisstéttina og málefni aldraðra og öryrkja. Einnig mun hann leggja áherslu á sjálfbærni í nýtingu auðlinda.

Patreksfirðingur og bæjarstjóramaki

Bæring er fæddur á Patreksfirði 22. nóvember 1955. Á yngri árum starfaði hann m.a. við sjómennsku, í byggingaiðnaði og sölumennsku. Árið 1984 fluttist hann til Oregon og stundaði þar nám í viðskiptafræði við University of Oregon til 1987. Bæring er kvæntur Rose Olafsson bæjarstjóra og á sex börn og sex barnabörn.

Í tilkynningunni segir að Bæring hafi unnið sig til æðstu metorða síðastliðin 25 ár í starfi á Íslandi, í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Bæring hafi víðtæka reynslu á stórum markaðssvæðum og verið ábyrgur fyrir fyrirtækjum með allt að 17 þúsund manns í vinnu og með árlega veltu frá 150 til 450 milljörðum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert