Mikill viðbúnaður við Hótel Sögu

Hótel Saga.
Hótel Saga.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikill viðbúnað í Vesturbænum á fimmta tímanum í dag vegna atviks við Hótel Sögu.

Samkvæmt heimildum mbl.is er maður slasaður eftir fall úr byggingunni.

Maðurinn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi og fylgdi því mikill viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs þar sem loka þurfti mörgum gatnamótum til að koma þeim slasaða sem fyrst á sjúkrahús.

Mikil umferð er á þessum slóðum síðdegis á virkum dögum. 

Lögreglan hefur girt af svæði við hótelið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert