Sex með bónusvinninginn

Lottó
Lottó

Enginn spilari var með allar tölurnar réttar í Lottó kvöldsins, en fyrsti vinningur var að þessu sinni 6,8 milljónir. Sex fengu aftur á móti bónusvinninginn, en hann nam 105 þúsund krónum. Voru vinningsmiðarnir seldir hjá Shell í Hveragerði, á vef Lottó og tveir hjá bæði Happahúsinu í Kringlunni og í gegnum áskrift.

Þá voru fjórir með annan vinning í Jókernum, en vinningsupphæðin nemur 100 þúsund krónum. Enginn var með aðalvinninginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert