Engin niðurgreiðsla

Íslandspóstur fækkar dreifingardögum á pósti í dreifbýli.
Íslandspóstur fækkar dreifingardögum á pósti í dreifbýli. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Hingað hafa borist erindi frá sveitarstjórnum sem lýsa óánægju með þessa breytingu. Við að sjálfsögðu hlustum á þau sjónarmið en ákvörðun okkar stendur,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður hjá Póstinum.

Íslandspóstur hefur fengið leyfi Póst- og fjarskiptastofnunar til að fækka dreifingardögum á pósti í dreifbýli. Verður pósti, frá og með 1. apríl næstkomandi, dreift þrjá daga í viku aðra vikuna og tvo daga í hinni, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

„Samkvæmt skilgreiningu er þetta lágmarksþjónusta en Pósturinn mun áfram leitast við að veita sem besta þjónustu í samræmi við óskir hvers viðskiptavinar,“ segir Brynjar. „Þó verður að segjast að kostnaður við póstdreifingu úti í sveitunum er mjög hár og meðgjöfin er mikil. Það er á engan hátt hlutverk Íslandspósts að niðurgreiða þessa þjónustu og við höfum því í raun enga aðra kosti í stöðunni.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert