Flugi til Brussel á sunnudag aflýst

Búið er að aflýsa flugi Icelandair milli Keflavíkurflugvallar og  Zaventem flugvallar í Brussel á páskadag. Ljóst er að flugvöllurinn í Brussel verður lokaður til miðnættis á sunnudag.

Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúar Icelandair, hefur gengið vel að koma þeim sem áttu bókað flug með Icelandair til og frá Brussel í annað áætlunarflug Icelandair. Flestir þeirra fljúgi um París eða Amsterdam en alls hefur Icelandair þurft að aflýsa sex flugum til Brussel, tveimur á þriðjudag, sama dag og árásirnar voru gerðar. Á fimmtudag var tveimur flugum aflýst og svo tveimur á páskadag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert