Tveir eldsvoðar í Fellahverfi

Mikill viðbúnaður er hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu en tilkynnt hefur verið um eldsvoða á tveimur stöðum í Fellahverfinu.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var fyrst tilkynnt um eld í anddyri fjölbýlishúss að Iðufelli 4 og nokkrum mínútum síðar var tilkynnt um eldsvoða að Gyðufelli 10. Þar var einnig eldur í anddyri og er búið að slökkva eldinn þar og verið að reykræsta.

Ekki er vitað að svo stöddu hvort eldsvoðarnir tengjast eða ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert