Mokað upp úr Landeyjahöfn

Belgíska sanddæluskipið Galileo 2000 að störfum við Landeyjahöfn.
Belgíska sanddæluskipið Galileo 2000 að störfum við Landeyjahöfn. Ljósmynd/Landeyjahöfn

Stórvirkar vinnuvélar hafa nú verið fluttar í Landeyjahöfn, en ætlunin er að moka sandi upp úr höfninni. Áætlað er að framkvæmdin hefjist í dag og standi yfir í um tíu daga. Fyrirtækið Suðurverk sér um verkið.

„Við erum komin þarna með fimm tæki, gröfur, trukka og ýtu. Það stendur til að ná innan úr höfninni sandi, foksandi sem hefur borist inn í hana. Við náum vissum hluta en auðvitað ekki öllu,“ segir Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, en gröfurnar sem um ræðir hafa bómur sem ná lengra en á hefðbundnum gröfum.

Siglingar um Landeyjahöfn hófust fyrst í byrjun maí í fyrra en þeim lauk um miðjan september. Erfiðlega hefur gengið að dýpka Landeyjahöfn frá því að belgíska sanddæluskiptið Galileo 2000 var fengið til landsins í lok febrúar sl.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert