Fimm slasaðir eftir bílveltu

Konan var flutt al­var­lega slösuð með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unn­ar á Land­spít­al­ann.
Konan var flutt al­var­lega slösuð með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unn­ar á Land­spít­al­ann.

Betur virðist hafa farið en útlit var fyrir í fyrstu, er kona slasaðist alvarlega eft­ir bíl­veltu á Skeiðavegi, rétt sunn­an við Miðfell, um fimm leytið í nótt.

Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi hafa borist fregnir af því að konan sé búinn að fara í myndatöku og betur líti út með áverkana en talið var í fyrstu

Konan var flutt al­var­lega slösuð með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unn­ar á Land­spít­al­ann eft­ir bíl­veltuna. Fjór­ir aðrir voru í bíln­um og voru þeir all­ir flutt­ir með sjúkra­bíl­um á sjúkra­hús. 

Að sögn varðstjóra í lög­regl­unni á Suður­landi voru tveir þeirra flutt­ir á sjúkra­húsið á Sel­fossi en tveir á bráðamót­töku Land­spít­al­ans. Áverk­ar þeirra eru minni en konunnar sem flutt­ var með þyrlunni, en hún er með höfuðáverka. Ekki er vitað hvað olli slys­inu en ökumaður­inn er ekki grunaður um ölv­un við akst­ur. Fólkið í bíln­um eru ekki er­lend­ir ferðamenn.

Rannsókn slysins er lokið á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert