Með bilaðan bát í togi

Landsbjörg björgunarbátur mynd úr safni.
Landsbjörg björgunarbátur mynd úr safni. mbl.is/Heiddi

Björgunarskipið Björg frá Rifi er nú á leið til hafnar með bilaðan bát í togi. Báðu skipverjar bátsins, sem eru tveir, um aðstoð vegna vélarbilunar rétt eftir klukkan 13:00 í dag.

Bilunin kom upp þegar báturinn var staddur um 2 sjómílur út af Öndverðarnesi. Ekki var talin mikil hætta á ferðum þar sem bátinn rak frá landi og veður var þokkalegt á svæðinu þó það sé leiðindaveður fyrir innan Öndverðanesið. Gert er ráð fyrir að björgunarskipið komi til hafnar á Rifi rétt fyrir klukkan 16:00, segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert