Á öðrum tímanum í nótt var tilkynnt til lögreglu um mann við Miklubraut með rýting í bakinu. Maðurinn fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar og getur lögregla ekki veitt upplýsingar um hversu alvarlegir áverkar mannsins eru. Lögreglan handtók karl og konu í tengslum við málið og eru þau í haldi vegna rannsóknar málsins.
Ölvaður ökumaður var stöðvaður á Frakkastíg síðdegis í gær og í gærkvöldi var annar stöðvaður í Rimahverfi en sá var bæði próflaus og undir áhrifum fíkniefna.
Í nótt var einn ölvaður ökumaður stöðvaður á Vesturlandsvegi við N1 en í annarri bifreið sem lögregla stöðvaði í Kópavogi reyndist ökumaðurinn vera í lagi en allir fjórir farþegar hans voru undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var einnig með fíkniefni í fórum sínum.