Metfjöldi flugfélaga í sumar

Keflavíkurflugvöllur tekur á móti auknum fjölda flugfarþega á árinu 2016 …
Keflavíkurflugvöllur tekur á móti auknum fjölda flugfarþega á árinu 2016 og hefur verið stækkaður af þeim sökum um 10 þúsund fermetra.

Alls hafa 25 flugfélög boðað komu sína til Íslands í sumar. Hefur flugfélögunum því fjölgað um fimm frá árinu 2015 þegar 20 félög lentu hér á landi með farþega sína.

Er þetta töluverð fjölgun en árið 2010 voru flugfélögin einungis tíu talsins og fimm árið 2005, að því er fram kemur í umfjöllun um áframhaldandi aukningu í ferðaþjónustunni í Morgunblaðinu í dag.

Áætlað er að um 6,7 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll í ár en til samanburðar fóru um 4,8 milljónir manna um völlinn í fyrra. Þar á meðal eru komu-, brottfarar- og skiptifarþegar og því eykst heildarálag á flugvöllinn milli ára.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert