Halla í beinni hvern þriðjudag

Halla Tómasdóttir verður í beinu sambandi við kjósendur alla þriðjudaga …
Halla Tómasdóttir verður í beinu sambandi við kjósendur alla þriðjudaga fram að kosningum á Facebook síðu framboðs síns. Ljósmynd/Af Facebook síðu Höllu

Kosningabarátta Höllu Tómasdóttur, forsetaframbjóðanda, er komin á fulla ferð. Hluti af baráttunni er samtal Höllu við kjósendur, en hún verður í beinni útsendingu á Facebook-síðu framboðsins hvern þriðjudag kl. 13 fram að kosningum.

Útsendingin ber yfirskriftina „Samtal – Halla í beinni“. „Þar mun Halla ræða stefnumál sín, eiga samtal við áhorfendur og svara spurningum jafnóðum og þær berast,“ segir í tilkynningu frá Höllu. 

Fyrsta útsendingin er í dag klukkan 13 og hér má fylgjast með umræðunni. 

Samtal: Halla í beinni 29.mars

Posted by Halla Tomasdottir on Tuesday, March 29, 2016

Frétt mbl.is: Sárið í samfélaginu enn til staðar

Frétt mbl.is: Halla Tómasdóttir býður sig fram

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert