Lokaði heimagistingu á Suðurnesjum

Frá Reykjanesbæ. Mynd úr safni
Frá Reykjanesbæ. Mynd úr safni mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið starfsemi svokallaðrar Airbnb heimagistingar í umdæminu þar sem engin rekstrar – né starfsleyfi reyndust vera til staðar.

Var því um að ræða brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. Þar segir jafnframt að lögregla muni á næstunni heimsækja fleiri staði þar sem heimagisting er auglýst á Airbnb og athuga hvort tilskilin leyfi séu til staðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert