Hættir sem gjaldkeri Samfylkingarinnar

Vilhjálmur Þorsteinsson hefur sagt af sér embættis gjaldkera Samfylkingarinnar.
Vilhjálmur Þorsteinsson hefur sagt af sér embættis gjaldkera Samfylkingarinnar.

Vilhjálmur Þorsteinsson hefur ákveðið að segja af sér embætti gjaldkera Samfylkingarinnar. Þetta kemur fram í pistli á vefsíðu hans, en í dag kom fram að hann ætti eignarhaldsfélag í Lúxemborg, en landið hefur gjarnan verið skilgreint sem skattaskjól. Vilhjálmur tekur í pistlinum fram að ástæða staðsetningar félagsins sé aftur á móti ekki tengd skattamálum, heldur „fyrst og fremst vegna krónunnar, gjaldeyrishafta og óstöðugleika íslensks efnahags- og stjórnmálaumhverfis,“ eins og hann orðar það sjálfur.

Vilhjálmur fer í pistlinum yfir ástæður þess að hann eigi félag í Lúxemborg og hvernig skattamálum hans sé háttað. Meðal annars að hann greiði skatta vegna arðgreiðsla hér á landi o.s.frv. Segir hann að þrátt fyrir þessar skýringar sé svo „flókið eignarhalds- og fjárfestingadæmi hjá gjaldkera Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands“ ekki til þess fallið að fókusa umræðuna um aflandsfélög og skattaskjól á það sem máli skiptir, en Vilhjálmur segir það vera ríkisstjórnina og stjórnarmeirihlutann í landinu.

Segist hann því styðja stjórnarandstöðuna í því að kalla fram ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna á sínu fólki, en jafnframt segja af sér embætti gjaldkera Samfylkingarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert