7-8 þúsund manns á Austurvelli

Gríðarlegur fjöldi fólks hefur safnast saman á Austurvelli og hefur salernispappír og ávöxtum verið grýtt í átt að þinghúsinu. Blaðamaður mbl.is segir jafnvel fleiri nú á Austurvelli en í Búsáhaldabyltingunni.

Fyrstu tölur frá lögreglunni benda til þess að um 7-8.000 manns séu á Austurvelli.

Þingfundi hefur verið slitið.

Að sögn blaðamanns mbl.is, sem áðan stóð í blaðamannastúku þingsalsins, þá rigndi eggjum á rúður þingsalsins þannig að small í.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert