Mótmælendum fjölgar við Austurvöll

Lögreglan fylgist með gangi mála á Austurvelli.
Lögreglan fylgist með gangi mála á Austurvelli. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fjölgað hefur í röðum mótmælenda við Austurvöll og segir blaðamaður mbl.is á vettvangi mótmælendur nú þekja um þrjá fjórðuhluta Austurvallar og enn streymi að fólk.  Boðað var til mót­mæla á Austurvelli klukkan fimm síðdeg­is, ann­an dag­inn í röð.

Þegar er byrjað að fram­kalla hávaða með því að berja í olíutunnur og girðing­una í kring­um þing­húsið. Svipuð stemning er og í gær. Sjá má mörg sömu mótmælaskilti á svæðinu og í gær og bananar hafa víða verið hengdir upp í tré. Þá kallar fólk upp mótmæli sín, barið er í olíutunnur og grindverkið í kringum alþingishúsið til að framkalla hávaða.

Mótmælendahópurinn er mjög blandaður og á Austurvelli líkt og í gær og má sjá allt frá fjölskyldufólki með barnavagna til eldri borgara meðal mótmælenda.

Kristín Andrea Þórðardóttir kvikmyndaframleiðandi er ein þeirra sem mætt er á Austurvöll. „Ég vil fá þessa stjórn frá. Þrátt fyrir að það sé stærðargráðumunur á þessum brotum, þá vil ég alls ekki Bjarna áfram. Ég hef engan áhuga á að sjá Sigurð Inga, mann sem varði Sigmund Davíð í bak og fyrir. Ég vil helst nýja utanþingsstjórn. Þetta fólk er ekki starfi sínu vaxið,“ sagði Kristín Andrea.

Vera Sölvadóttir var einnig í hópi mótmælendanna. „Ég vissi í raun ekki hverju ég myndi mótmæla í dag, nema ég var viss um að það yrði eitthvað af því að atburðarásin er búin að vera mjög skrýtin,“ sagði Vera. „Þetta nýjasta útspil er eitt stórt hneyksli. Ég vil ríkisstjórnina frá og þetta var lélegt útspil í dag. Þetta var lélegur björgunarbátur.“

Það er hóp­ur­inn Bein­ar aðgerðir sem boðaði til mót­mæl­anna í dag, en á Face­book-síðu viðburðar­ins seg­ir: 

Kom­um sam­an á Aust­ur­velli að nýju og höld­um í hit­ann sem hef­ur mynd­ast - með hljóðfæri, eldivið, mat, drykk og bar­áttugleðina við hönd! Þess­ari rík­is­stjórn verður að koma frá, þó það sé bara byrj­un­in. Hafið sam­band við vini og deilið eft­ir öll­um mögu­leg­um leiðum - líka sím­leiðis og eft­ir áhrifa­rík­ari leiðum en face­book býður upp á: Lát­um ekki bar­áttu­eld­inn slökkna fyrr en tak­mark­inu hef­ur verið náð!

Í sam­tali mbl.is við lög­reglu eft­ir mót­mæl­in í gær kom fram að um níu þúsund manns hefðu mót­mælt á Aust­ur­velli en skipu­leggj­end­ur töldu að þangað hefðu 23 þúsund manns komið. Þess var kraf­ist að Alþing­is­kosn­ing­ar færu fram þegar í stað. 

Að sögn lög­reglu voru all­ar nær­liggj­andi göt­ur yf­ir­full­ar og mis­ræmið kann að skýr­ast af því að töl­ur skipu­leggj­enda miðast við gegn­um­streymi á torg­inu á ein­hverj­um tíma.

Fjölgað hefur í röðum mótmælenda.
Fjölgað hefur í röðum mótmælenda. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert