Vill endurnýja umboð forystunnar

Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert

Ég man ekki til þess að hafa tekið þátt í kosningabaráttu fyrir flokkinn án þess að stefnan hafi fyrst verið mótuð á landsfundi og umboð forystu endurnýjað af flokksmönnum. Skilst reyndar að það hafi gerst árið 1979 þegar kosið var til alþingis með mjög skömmum fyrirvara.

Þetta segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni en tilefnið er miðstjórnarfundur Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í dag. Í færslu sinni vitnar hún til skipulagsreglna flokksins og bendir á að landsfundur, sem mótar heildarstefnu flokksins í landsmálum, hafi æðsta vald í málefnum flokksins.

„Landsfund skal halda annað hvert ár. Miðstjórn boðar og undirbýr landsfund. Heimilt er að boða til landsfundar oftar ef miðstjórn telur brýna þörf krefja. Reglulegur landsfundur skal boðaður með minnst þriggja mánaða fyrirvara,“ ritar Unnur Brá í færslu sinni og vitnar til skipulagsreglnanna.

„Mér fyndist það ekki mjög lýðræðislegt né vænlegt til árangurs fyrir sjálfstæðisstefnuna að sleppa því nú við þessar aðstæður að kalla flokksmenn saman til að skýra stefnuna, kjósa forystu og skerpa áherslur fyrir kosningar.“

Landsfundur hefur æðsta vald í málefnum Sjálfstæðisflokksins og þar er heildarstefna flokksins í landsmálum mótuð, samkv...

Posted by Unnur Brá Konráðsdóttir on Sunday, April 10, 2016
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert