Ekið á Ómar Ragnarsson

Ómar Ragnarsson segist forsjóninni þakklátur.
Ómar Ragnarsson segist forsjóninni þakklátur. mbl.is/Rax

Ekið var á Ómar Ragnarsson er hann var að fara yfir gangbraut á Grensásveginum á föstudag. „Þetta voru þung högg, ekki létt,“ skrifar Ómar á bloggsíðu sína.

Ómar segir frá sögu sinni í ljósi umræðu um hjálmanotkun. Fyrir rúmu ári, er hann hóf hjólreiðar að nýju, keypti hann sér reiðhjólahjálm. 

„Með honum stangaði ég og braut framrúðu bíls sem ekið var á mig á gangbraut við Grensásveg síðdegis á föstudag,“ skrifar Ómar. 

„Hjálmurinn varði líka höfuð mitt fyrir miklu þyngra höggi þegar ég skall í götuna meira en tíu metrum frá gangbrautinni eftir að bíllinn hafði hent mér af þaki sínu þangað.

Þetta voru þung högg, ekki létt. Maður brýtur ekki framrúðu bíls svo léttilega með höfðinu. Allur líkaminn varð fyrir hnjaski og meiðslum, báðir ökklar, bæði hné, báðir olnbogar, hægri öxl og hálsinn.

Læknirinn á bráðadeild taldi magnað og algera hundaheppni að ekkert bein skyldi brotna.“

Ómar bendir á að börnum sé skylt að nota reiðhjólahjálma. „Það er skylda að nota bílbelti í akstri en ekki skylda fyrir fullorðna á reiðhjólum. Ég hef séð furðu marga hjóla hjálmlausa á hjólaferðum mínum síðan hjólið tók við hlutverki bílsins hjá mér.

Þess vegna er þessi pistill skrifaður,“ skrifar Ómar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert