Kvikmyndatökur við Hótel Rangá

Kim Kardashian tók Snapchat við Gullfoss í gær.
Kim Kardashian tók Snapchat við Gullfoss í gær. Skjáskot/Snapchat

Mikið er nú um að vera á Hótel Rangá og virðist sem svo að einhver hluti Kardashian klansins hafi mætt á svæðið með þyrlum í morgun.

Að sögn sjónarvotta er vörður við hliðið inn á landareign hótelsins og nokkur þyrluumferð til og frá svæðinu. Þá sjást bílar kvikmyndatökuliðs og virðist sem svo að einhverskonar tökur standi yfir við hótelið.

Eins og fram hefur komið er talið að Kanye West hyggist taka upp tónlistarmyndband hér á landi. Tökurnar gætu þó einnig verið á vegum sjónvarpsstöðvarinnar E! sem framleiðir raunveruleikaþættina Keeping Up With the Kardashians en ljóst er að ævintýri þeirra Kourtney, Kim og Kanye hér á landi verður myndað í bak og fyrir vegna þáttanna.

Óstaðfestar heimildir mbl.is herma að þarna séu svo sannarlega þau Kim og Kanye á ferðinni ásamt föruneyti en ekkert fékkst staðfest um hamaganginn við hótelið af rekstraraðilum þess.

Kanye West og Kim Kardashian á Íslandi.
Kanye West og Kim Kardashian á Íslandi. Skjáskot
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert