Dekkjaverkstæði neituðu að taka þátt í verðkönnun ASÍ

Um helmingur dekkjaverkstæða neitaði þátttöku í könnun verðlagseftirlits ASÍ nú …
Um helmingur dekkjaverkstæða neitaði þátttöku í könnun verðlagseftirlits ASÍ nú í vor. Þorkell Þorkelsson

Um helmingur dekkjaverkstæða neitaði þátttöku í könnun verðlagseftirlits ASÍ þegar gerð var tilraun til að kanna verð á dekkjaskiptum nú í byrjun apríl, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ASÍ. Þá hafi verið vísbendingar um samráð milli aðila um að vísa fulltrúum verðlagseftirlitsins frá og neita þannig að upplýsa neytendur um verð á þeirri þjónustu sem er í boði.

Einnig voru dæmi um að þjónustuaðilar vísuðu verðtökufólki á annan stað, svo sem á skrifstofu viðkomandi fyrirtækis, til þess að fá uppgefið verð. „Slíkt samræmist ekki þeim sjálfsagða rétti neytenda að fá skýrar og skilmerkilegar upplýsingar um verð vöru og þjónustu á sölustað og gengur alfarið gegn verklagsreglum verðlagseftirlitsins um framkvæmd verðkannana,“ segir í fréttatilkynningunni.

Reynslan af verðkönnunum ASÍ hjá dekkjaverkstæðum á undanförunum árum hafi sýnt að það sé að jafnaði mikill verðmunur á milli þjónustuaðila og full ástæða fyrir neytendur að bera saman verð. „Að fyrirtæki velji að neita fulltrúum neytenda um að safna og birta þessar upplýsingar veldur verulegum vonbrigðum og vekur eðlilega upp spurningar um hvað slík fyrirtæki hafi að fela. Þá vakti athygli að á nokkrum hjólbarðaverkstæðum bar á hreinum og klárum dónaskap í garð verðtökufólks.“ 

Verðlagseftirlit ASÍ geti því ekki birt upplýsingar um verð á umfelgun líkt og gert hafi verið undanfarin ár, en eftirtaldir þjónustuaðilar neituðu fulltrúum verðlagseftirlitsins um aðgang að verði á þjónustu sinni: Betra grip, N1, Dekkjahöllin, Gúmmívinnustofan, Bílkó, Dekkjahúsið, Bifreiðaverkstæði SB, Klettur, Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Barðinn, Sólning, Nesdekk Grjóthálsi, KvikkFix og Hjólbarðaverkstæði Kaldasels.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert