Skoðuðu perlur Suðurlands

Kourtney Kardashian setti þessa mynd af hluta hópsins við Gullfoss …
Kourtney Kardashian setti þessa mynd af hluta hópsins við Gullfoss á Instagram-síðu sína í gær.

Ofurparið Kim Kardashian og Kanye West kom til landsins í gær ásamt fylgdarliði. Gista þau á Hótel 101 í miðbæ Reykjavíkur en þau eru hér til að taka upp tónlistarmyndband við lag West.

Kemur fram í Morgunblaðinu í dag, að þau séu einnig að taka upp efni í raunveruleikaþáttinn vinsæla „Keeping up with the Kardasians“.

Fjöldi manns mætti fyrir utan 101 hótel í gær til að fanga þau á mynd og myndaðist töluverður æsingur þegar ofurparið fór um borð í Mercedez Benz-rútu áleiðis að perlum Suðurlands. Þau nýttu gærdaginn til að skoða Gullfoss meðal annars og samkvæmt samfélagsmiðlum voru þau ánægð með fossinn og rokið sem blés á stjörnurnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert