Vann 154 milljónir króna

Heppinn lottóspilari vann stóra pottinn í Víkinga lottóinu í kvöld og er fyrir vikið rúmlega 154 milljónum króna ríkari. Vinningsmiðinn var keyptur í Noregi.

Aðrir vinningar gengu ekki út en þrír fá eitt hundrað þúsund krónur hver fyrir að hafa fjórar réttar tölur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert