Árbæjarskóli fór með sigur af hólmi

Lið Árbæjarskóla skipa þeir Bjarki Sigurðsson, Fannar Sigurðsson og Vilhjálmur …
Lið Árbæjarskóla skipa þeir Bjarki Sigurðsson, Fannar Sigurðsson og Vilhjálmur Jónsson sem allir eru í 10. bekk. Rax / Ragnar Axelsson

Spurningalið Árbæjarskóla bar sigur úr býtum í spurningakeppni grunnskólanna, Veistu svarið, sem fór fram í gærkvöldi og varði þannig titilinn frá fyrra ári. Í öðru sæti var Landakotsskóli og Hagaskóli í því þriðja.

Lið Árbæjarskóla skipa þeir Bjarki Sigurðsson, Fannar Sigurðsson og Vilhjálmur Jónsson sem allir eru í 10. bekk. Þjálfari liðsins er Árni Björnsson. Spyrill og spurningahöfundur keppninnar er Hannes Daði Haraldsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert