Fer hörðum orðum um yfirvinnubann

Flugstöð Leif Eiríkssonar - Leifsstöð - FLE - Isavia - …
Flugstöð Leif Eiríkssonar - Leifsstöð - FLE - Isavia - Keflavíkurflugvöllur - Icelandair - WOW - flug - þotur mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Samtök ferðaþjónustunnar telja óásættanlegt að ferðaþjónustunni og almannahagsmunum sé stefnt í voða með þeim hætti sem raun ber vitni. Það gengur ekki upp að fámennir hópar launþega geti valdið jafn miklum vandræðum og haft ferðaþjónustuna og samgöngur til og frá landinu í hendi sér í kjarabaráttu sinni.“

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF) vegna yfirvinnubanns flugumferðastjóra. Vísað er ennfremur til þess að ISAVIA hafi tilkynnt að vegna bannsins verði þjónusta á Keflavíkurflugvelli takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug frá klukkan 21.00 - 7:00 í fyrramálið þar sem tveir flugumferðastjórar, sem vera áttu á vakt í nótt, séu veikir og vegna yfirvinnubannsins fáist ekki flugumferðastjórar til afleysinga.

„Ljóst er þessar aðgerðir munu hafa áhrif á 24 flug til og frá landinu með þeim afleiðingum að rúmlega 4000 farþegar komast ekki lönd né strönd,“ segir ennfremur og áfram: „Ímynd og orðspor Íslands sem áfangastaður fyrir ferðamenn er í húfi og mikilvægt að stöðugleiki ríki í samgöngum. Þá verður að eyða allri óvissu fyrir ferðaþjónustuna og landsmenn alla hið fyrsta. Samtök ferðaþjónustunnar skora á samningsaðila beggja vegna borðsins að ná sáttum þannig að ekki komi til frekara tjóns fyrir íslenskt samfélag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert