Súkkulaðið sigraði

Hópurinn sem stendur að Moon Chocolate.
Hópurinn sem stendur að Moon Chocolate.

Fyrirtækið Moon Chocolate, sem er í eigu nemenda við Verzlunarskóla Íslands, var valið fyrirtæki ársins 2016 í samkeppni ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Fyrirtækið selur handgert hágæðasúkkulaði úr tansanískum kakóbaunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Junior Achievement á Íslandi.

Fimmtán „nemendafyrirtæki“ frá átta menntaskólum tóku þátt í lokakeppni sem fram fór í gær, en Moon Chocolate verður fulltrúi Íslands í keppninni um Evrópskt fyrirtæki ársins sem fram fer í Lucerne í Sviss 25.-28. júlí 2016.

Eftirfarandi nemendafyrirtæki fengu verðlaun:

- Fyrirtæki ársins: Moon Chocolate (Verzlunarskóli Íslands)

- Fyrirtæki ársins - 2. Sæti: EaseLand (Verzlunarskóli Íslands)

- Fyrirtæki ársins - 3. Sæti: Localice (Fjölbrautaskólinn við Ármúla)

- Bestu markaðs- og sölumálin: Necklash (Menntaskólinn við Sund)

- Mesta nýsköpunin: WATT (Fjölbrautaskólinn í Breiðholti)

- Besta viðskiptaáætlunin: Sláturfélagið (Verzlunarskóli Íslands)

- Söluhæsta varan: Sláturfélagið (Verzlunarskóli Íslands)

- Viðurkenning fyrir áherslu á sjálfbærni: Bébé (Menntaskólinn við Hamrahlíð)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert