Sturla Þór Jónsson arkitekt var meðal farþega sem voru um borð í vél Icelandair sem varð fyrir eldingu þegar hún var að koma inn til lendingar á Heathrow-flugvelli í Lundúnum í Bretlandi í gær.
Frétt mbl.is: Eldingu laust niður í flugvél Icelandair
Atvikið hefur vakið töluverða athygli en það náðist á myndband á jörðu niðri. „Ég var þarna að horfa á Star Wars og sit niðursokkinn í myndina vinstra megin við vænginn við neyðarútganginn,“ segir Sturla og kveður sín fyrstu viðbrögð hafa verið hvort nýtt hljóðkerfi væri komið í vélina. „Það varð alveg svakalegur hvellur og birti til í vélinni.“ Hann og sessunautur hans hafi síðan litið hvor á annan, enda hafi hvellurinn heyrst vel þrátt fyrir heyrnartólin.
Sturla segir farþegana ekki hafa áttað sig á því að flugvélin hafi orðið fyrir eldingu. „Við litum bara hvert á annað. Það kom enginn tilkynning og það varð ekkert rót á fólki. Það voru allir sallarólegir.“ Einhverjir hafi þó velt því fyrir sér hvort hægt yrði að lenda.
Frétt mbl.is: Búnar til þess að taka við eldingu
Það var svo ekki fyrr en síðar, þegar Sturla var staddur í íslenska sendiráðinu í London og honum var bent á myndband af flugvélinni að verða fyrir eldingu, sem hann hefði áttað sig á því hvað hefði gerst. „Þá dauðbrá manni líka,“ segir hann.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfesti atvikið í samtali við mbl.is og sagði vélina hafi farið í skoðun líkt og alltaf sé gert þegar flugvélar fái í sig eldingu, en farþegarvélar séu búnar til þess að taka við eldingu og losa sig við hana.