Tekinn með 6 kíló af hassi

Maðurinn var handtekinn þegar hann kom í Leifsstöð.
Maðurinn var handtekinn þegar hann kom í Leifsstöð. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu í síðustu viku erlendan karlmann með sex kíló af hassi á sér. Maðurinn var að koma frá Kaupmannahöfn og millilenti á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Grænlands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tollstjóra.

Við hefðbundið eftirlit fundu tollverðirnir hassið, sem pakkað hafði verið niður með farangri hans, og haldlögðu það. Lögreglan á Suðurnesjum fór með rannsókn málsins, sem telst upplýst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert