Eftirliti með notkun lyfja í landbúnaði ábótavant

Megintilgangur landsáætlunar um vöktun lyfjaleifa í búfjárafurðum er að tryggja …
Megintilgangur landsáætlunar um vöktun lyfjaleifa í búfjárafurðum er að tryggja að neytendur verði ekki fyrir skaða. mbl.is

Algengt er að dýralyf séu afhent án tilskilinna lyfseðla og að eftirliti með notkun lyfja í landbúnaði sé ábótavant. Þetta segir í fréttatilkynningu frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, um matvælaöryggi þar sem fram kemur að þörf er á að bæta eftirlit með lyfjaleifum í dýrum og dýraafurðum á Íslandi.

Megintilgangur landsáætlunar um vöktun lyfjaleifa í búfjárafurðum er að tryggja að neytendur verði ekki fyrir skaða vegna lyfjaleifa í matvælum. Ísland sendir ESA árlega áætlun um fyrirhugaðar sýnatökur sem og niðurstöður mælinga á lyfjaleifum.

Í tilkynningunni segir að brugðist hafi verið við ábendingum ESA að nokkru leyti eftir hliðstæða úttekt sem gerð var árið 2011 og þar beri helst að nefna rafrænan gagnagrunn sem gerir eftirlitsaðilum kleift að hafa skilvirkara eftirlit með notkun dýralyfja.

„Þótt landsáætlun Íslands um vöktun lyfjaleifa hafi batnað á síðustu árum eru enn á henni vankantar, til dæmis hvað varðar tíðni sýnataka og val á efnum sem mæla á í sýnunum. Til að tryggja skilvirkni landsáætlunarinnar þarf að bæta samstarf milli opinberra aðila við áætlanagerð og eftirlit með innleiðingu landsáætlunar.  Þá þarf að dreifa sýnatöku jafnar yfir árið og tryggja eftirfylgni ef lyf eða önnur aðskotaefni mælast,“ segir í tilkynningunni.  

„Í skýrslu ESA má finna ábendingar til að bæta úr þessum annmörkum og efla opinbert eftirlit með lyfjaleifum á Íslandi. Ísland hefur tekið athugasemdirnar sem settar eru fram í skýrslu ESA til greina og lagt fram tímasetta aðgerðaáætlun sem nú er til skoðunar hjá ESA.“

Lesa má skýrsluna í heild sinni hér.

 Lesa má skýrsluna í heild sinni hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert