Vegir eru greiðfærir um Suður- og Vesturland samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja og éljagangur er norður í Árneshrepp.
Á Norðurlandi vestra er að mestu greiðfært á láglendi en eitthvað um hálkubletti á Siglufjarðarvegi. Á Norðausturlandi eru hálkublettir eða snjóþekja nokkuð víða. Ófært er um Dettifossveg.
Á Austurlandi er að mestu greiðfært á láglendi en hálka eða hálkublettir á fjallvegum. Ófært er á Öxi. Greiðfært er með Suðausturströndinni.