Réðst á starfsmann veitingastaðar

Maðurinn var handtekinn í Austurstræti.
Maðurinn var handtekinn í Austurstræti. mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan handtók í nótt mann í annarlegu ástandi í Austurstræti í Reykjavík  á öðrum tímanum í nótt. Hafði maðurinn ráðist á starfsmann veitingastaðar. Eftir að lögregla kom á staðinn hafði maðurinn í hótunum við hana og fór hann ekki að fyrirmælum. 

Í dagbók lögreglu kemur fram að maðurinn hafi verið vistaður í fangageymslu þangað til ástand hans lagast, en hann var óræðuhæfur í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert