Réðust á unga konu í Reykjavík

löggumyndir
löggumyndir mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Tvær konur réðust á unga konu í Reykjavík í gærkvöldi og toguðu í hár hennar og veittu henni áverka á hálsi og eyra. Lögregla var kölluð á staðinn, en atvikið átti sér stað á níunda tímanum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Unga konan kvaðst ekki vita um ástæðu árásarinnar þegar lögregla ræddi við hana, en önnur kvennanna sem réðst á hana sagði þetta vegna eldra ósættis. Ungu konunni var ekið á slysadeild til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert