Þjónusta sjúkrahótels tryggð áfram

Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.
Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. mbl.is

Lokun sjúkrahótelsins í Ármúla í Reykjavík hefur verið frestað til 31. maí samkvæmt samkomulagi Sjúkratrygginga Íslands og Heilsumiðstöðvarinnar. Með þessu skapast aukið svigrúm til að finna þessari þjónustu farveg þar til nýtt sjúkrahótel verður opnað á næsta ári, segir í frétt frá velferðarráðuneytinu.

Samingur um rekstur sjúkrahótelsins í Ármúla hefði að óbreyttu runnið út 30. apríl. Sjúkrahótel er ætlað þeim sem þurfa að dvelja fjarri heimili sínu vegna rannsókna eða meðferðar. Annars vegar er um að ræða einstaklinga sem fyrst og fremst þurfa á dvalarstað að halda og hins vegar er úrræðið ætlað fólki sem jafnframt þarfnast hjúkrunar.

Framlenging samningsins tekur til þess hóps sem ekki þarfnast hjúkrunar og mun hótelið í Ármúla taka við þeim gestum til loka maí. Unnið er að lausn varðandi þjónustu við þennan hóp eftir þann tíma.

Landspítali annast dvalargesti sem þarfnast hjúkrunar frá 1. maí

Ákveðið hefur verið að Landspítali taki yfir þjónustu við þá sem ekki þurfa aðeins dvalarstað heldur einnig hjúkrunarþjónustu frá 1. maí næstkomandi. Gert er ráð fyrir að þetta fyrirkomulag verði haft á þar til að nýtt sjúkrahótel sem verið er að byggja á lóð Landspítala við Hringbraut tekur til starfa í apríl á næsta ári.

Í tilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands um málið segir að Heilsumiðstöðin hafi að beiðni Sjúkratrygginga samþykkt að fresta uppsögn á samningi um rekstur sjúkrahótels í Ármúla í einn mánuð. Uppsögnin tekur gildi 31. maí í stað 30. apríl og verður því tekið á móti gestum á sjúkrahótelinu í Ármúla út maí. Á næstu vikum verður unnið að framtíðarlausn úrræðisins.

„Með þessu samkomulagi er verið að koma í veg fyrir yfirvofandi þjónusturof fyrir þá einstaklinga sem þurfa heilsu sinnar vegna að dvelja fjarri heimili sínu vegna rannsókna og/eða meðferðar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert