Tveir fá 76 milljónir króna

Tveir heppnir lottóspilarar eru tæplega 76 milljónum króna ríkari eftir EuroJackpot lottó kvöldsins en þeir unnu annan vinning kvöldsins. Aðalvinningurinn gekk ekki út en hann hljóðaði upp á tæpan 1,4 milljarð króna. Vinningsmiðarnir voru keyptir í Tékklandi og Svíþjóð.

Tveir unnu einnig þriðja vinninginn og fær hvor í sinn hlut tæplega 27 milljónir króna. Vinningsmiðarnir voru keyptir í Þýskalandi og á Ítalíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert