Vegir eru greiðfærir um Suður- og Vesturland samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum eru hálkublettir óg éljagangur á Steingsrímsfjarðarheiði og snjóþekja og éljagangur norður í Árneshrepp.
Á Norðurlandi vestra er að mestu greiðfært á láglendi en eitthvað um hálkubletti á Siglufjarðarvegi.
Á Norðausturlandi eru hálkublettir eða snjóþekja nokkuð víða.
Á Austurlandi er að mestu greiðfært á láglendi en hálkublettir á fjallvegum. Hálka er á Öxi.
Greiðfært er með Suðausturströndinni.