Kvikmyndagerðarmenn verða stéttarfélag

Félag kvikmyndagerðarmanna varð í dag stéttarfélag með aðild að Rafiðnaðarsambandi Íslands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

„Félag kvikmyndagerðarmanna, sem er 50 ára um þessar mundir, var stofnað af starfsmönnum hins nýstofnaða sjónvarps RÚV 1966. Alltaf stóð til að félagið yrði stéttarfélag en það varð ekki að veruleika fyrr en lögum félagsins var breytt 2014. Nú hefur FK stigið skrefið til fulls og hefur starfsemi stéttarfélagsdeildarinnar frá og með 1sta maí 2016.“

Ennfremur segir að Félag kvikmyndagerðarmanna hafi verið í viðræðum við RSÍ um nokkurn tíma varðandi inngöngu í sambandið. „Umsókn FK var tekin fyrir á sambandsstjórnarfundi RSÍ dagana 29. og 30. apríl 2016 og hún var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða. Stefnt er að formlegu inntökuferli ljúki á næsta þingi Rafiðnaðarsambandsins 2019.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert