Ólafur og Dorrit mætt

Dorrit og Ólafur mæta til afmælisveislunnar í dag.
Dorrit og Ólafur mæta til afmælisveislunnar í dag. Skjáskot/Aftonbladet.se

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dor­rit Moussai­eff for­setafrú mættu í morgun til guðsþjónustu í hallarkirkjunni í Svíþjóð í tilefni af 70 ára afmæli Karls Gústafs Svíakonungs. Margt kóngafólk og þjóðhöfðingjar eru meðal gesta í afmæli konungsins.

Eftir athöfnina fóru konungshjónin, Silvía og Karl Gústaf, út á svalir hallarinnar, þar sem þau voru hyllt og afmælissöngurinn var sunginn af þúsundum manna sem voru saman komnar til að fagna afmæli konungs.

Lagið „All you need is love“ var sungið fyrir kónginn í ráðhúsinu í Stokkhólmi. Sýnt var frá söngnum í beinni útsendingu í sænska ríkissjónvarpinu og þar mátti sjá að Ólafur og Dorrit sungu með og Dorrit dillaði sér í takt við tónlistina. 

Meðal at­b­urða í hátíðar­höld­un­um í dag eru auk guðþjón­ustunnar í hall­ar­kirkj­unni, há­deg­is­verður í Ráðhúsi Stokk­hólms­borg­ar og hátíðar­kvöld­verður í kon­ungs­höll­inni. Á morgun, sunnu­dag, snæða íslensku for­seta­hjón­in há­deg­is­verð með kon­ungi og fjöl­skyldu hans í kon­ungs­höll­inni.

Frétt mbl.is: Hástéttarmaður eða skandalakóngur?

Ólafur Ragnar mætir til guðsþjónustunnar í morgun.
Ólafur Ragnar mætir til guðsþjónustunnar í morgun. Skjáskot/Aftonbladet.se
Silvía drottning og Karl Gústaf við athöfn í konunglegu kapellunni …
Silvía drottning og Karl Gústaf við athöfn í konunglegu kapellunni í morgun. AFP
Margrét Danadrottning mætir til athafnar í konunglegu kapellunni í morgun …
Margrét Danadrottning mætir til athafnar í konunglegu kapellunni í morgun í tilefni sjötugsafmælis Svíakonungs. AFP
Viktoría krónprinsessa Svía og eiginmaður hennar, Daníel prins.
Viktoría krónprinsessa Svía og eiginmaður hennar, Daníel prins. AFP
Soffía Svíaprinsessa og Karl Filippus prins.
Soffía Svíaprinsessa og Karl Filippus prins. MAJA SUSLIN/TT
Karl Gústaf tekur við blómi frá ungri stúlku fyrir utan …
Karl Gústaf tekur við blómi frá ungri stúlku fyrir utan konungshöllina. AFP
Karl Gustaf og Karl Filippus prins koma til athafnar í …
Karl Gustaf og Karl Filippus prins koma til athafnar í konungshöllinni í morgun. AFP
Silvía drottning og Karl Gústaf mættu í hestvagni til guðsþjónustunnar …
Silvía drottning og Karl Gústaf mættu í hestvagni til guðsþjónustunnar í morgun. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert