Enginn beðið um aukna einkavæðingu

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í ræðustól á 1. maí …
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í ræðustól á 1. maí hátíðahöldunum í dag. Ljósmynd/BSRB

Aukin einkavæðing í heilbrigðiskerfinu og aukinn þátttaka sjúklinga í heilbrigðiskostnaði eru merki um að stjórnvöld séu á rangri braut. Uppi er skýr krafa að uppsveiflan, sem nú ríkir hér á landi, skili sér í aukinni velferð og íslenskir foreldrar eru að sligast undan álagi. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB, í ræðu hennar á 1. maí hátíðahöldunum í Hafnarfirði. Hún sagðist ekki hafa orðið vör við að almenningur hefði beðið um aukna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu.

Elín Björg gerði fjársvelti heilbrigðiskerfisins að umtalsefni. 

„Ný rannsókn prófessors Rúnars Vilhjálmssonar á heilsu og lífsháttum Íslendinga gefur sterkar vísbendingar um að gjaldtakan í heilbrigðiskerfinu hefti aðgengi tiltekinna hópa að þjónustunni. Niðurstöður hans sýna að of stór hópur Íslendinga frestar því að leita sér læknisaðstoðar, jafnvel þótt hann telji sig þurfa á slíkri þjónustu að halda. Stöðugt fleiri nefna kostnað sem ástæðu þess að þeir leita ekki til læknis. Við slíkt ástand verður ekki unað,“ sagði Elín Björg.

Hún benti á að stjórnvöld hafi nú kynnt tvennar breytingar á heilbrigðiskerfinu. Annars vegar þak á greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu, sem mun að óbreyttu kalla á stóraukna gjaldtöku af stórum hluta þjóðarinnar. Hins vegar ræddi hún um þá ákvörðun stjórnvalda að þrjár nýjar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu verði einkareknar.

„Ég hef ekki orðið vör við að fólkið í landinu sé að biðja um aukna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu og því síður að það óski eftir að greiða meira fyrir læknisþjónustuna,“ sagði Elín Björg.

Sættum okkur ekki við skattaskjól

Hún gagnrýndi ennfremur harðlega þá sem fela eigur sínar í skattaskjólum, þar sem megin tilgangurinn sé að fela eignarhald og komast hjá því að greiða skatta. „Við sættum okkur ekki við að þeir sem mest hafa geti ráðið því sjálfir hvort þeir ætla að greiða skatta til velferðarsamfélagsins, með okkur hinum, eða fela fjármuni sína í skattaskjólum á sólríkum Suðurhafseyjum,“ sagði Elín Björg og sagði það skýra kröfu að uppsveiflan, sem nú ríkti hér á landi, skilaði sér í aukinni velferð fyrir alla.

Komast þyrfti nær þeim lífsgæðum sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Til þess þurfi að nýta skattkerfið sem jöfnunartæki.

Fjölskyldur búi við öryggi í húsnæðismálum

Í ræðu sinni fór Elín Björg yfir áherslur BSRB um fjölskylduvænna samfélag. „Krafan felur í sér bætt fæðingarorlofskerfi og samfellu í dagvistun barna að loknu fæðingarorlofi, styttingu vinnuvikunnar og aukinn sveigjanleika á vinnumarkaði miðað við þarfir einstaklinganna og síðast en ekki síst er krafan að fjölskyldur búi við öryggi í húsnæðismálum. Fjölmargar rannsóknir sýna að íslenskir foreldrar eru að sligast undan álaginu af samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs og því er þörf á breytingum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert