Guðni boðar til fundar

Guðni er sagnfræðingur að mennt.
Guðni er sagnfræðingur að mennt. mbl.is/Golli

Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, mun tilkynna á fimmtudag hvort hann hyggist bjóða sig fram til forseta.

Þessu greinir Guðni frá á Facebook síðu sinni.

„Kæru vinir! Um leið og ég óska launafólki til hamingju með daginn færi ég ykkur þær fréttir að ég hef ákveðið að tilkynna svar mitt við spurningunni miklu um forsetaframboð í Salnum í Kópavogi kl. 14:00 á uppstigningardag, fimmtudaginn 5. maí,“ skrifar Guðni

„ Verið öll hjartanlega velkomin.“

Í opinni könnunn MMR sem birtist síðastliðinn föstudag mældist Guðni með tæplega 25 prósenta fylgi þrátt fyrir að vera ekki formlega í framboði. Ólafur Ragnar Grímsson mældist með mest fylgi, 46 prósent og Andri Snær Magnason með 15 prósent.  Aðrir sem nefnd­ir voru mæl­dust með minna en 2% fylgi.

Fylgi Guðna er mest meðal kjós­enda á aldr­in­um 45-54 ára, sem búa í ná­granna­sveit­ar­fé­lög­um Reykja­vík­ur, eru með 800 þúsund eða hærri fjöl­skyldu­tekj­ur og sem kjósa Bjarta framtíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert