LÍN afturkalli skerðingu til námsmanna erlendis

mbl.is/Hjörtur

Bandalag háskólamanna (BHM) skorar á stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) að afturkalla skerðingu á framfærslulánum til námsmanna erlendis. „Hætta er á að fjöldi námsmanna erlendis hrökklist frá námi vegna hennar. Slíkt yrði til mikils skaða fyrir íslenskt samfélag.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá BHM. Þar segir ennfremur, að bandalagið lýsi áhyggjum af nýjum úthlutunarreglum LÍN sem takmarki möguleika námsfólks til að afla sér menntunar utan landsteinanna.

Nýju reglurnar, sem mennta- og menningarmálaráðherra hafi staðfest, feli í sér allt að 20% skerðingu á framfærslulánum til námsmanna erlendis á skólaárinu 2016–17. Frekari skerðing sé boðuð á næsta skólaári.

„BHM tekur undir með Sambandi íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) sem hefur bent á að með nýju úthlutunarreglunum hafi fólk sem stundar nám erlendis orðið fyrir forsendubresti. Það hafi tekið ákvörðun um nám erlendis og gert áætlanir um það á grundvelli fyrri reglna en sjái nú fram á að forsendur þeirra séu brostnar. Að mati BHM er framkoma sjóðsins gagnvart þessum hópi óviðunandi. Bandalagið skorar á stjórn LÍN að afturkalla þá skerðingu sem nýju úthlutunarreglurnar fela í sér. Hætta er á að fjöldi námsmanna erlendis hrökklist frá námi vegna hennar. Slíkt yrði til mikils skaða fyrir íslenskt samfélag enda hefur sú fjölbreytta þekking sem námsmenn hafa í áranna rás aflað sér utan landsteinanna skilað því miklum ávinningi,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert