Undirbýr stefnu gegn Fréttablaðinu

Fréttablaðið og 365.
Fréttablaðið og 365. mbl.is/Ómar Óskarsson

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður tveggja karlmanna sem kærðir voru fyrir nauðgun en mál þeirra felld niður, er að undirbúa stefnu gegn Fréttablaðinu fyrir fréttaflutnings þess af málinu. Hann reiknar með því að stefnan verði þingfest strax eftir næstu helgi.

Ríkisútvarpið greinir frá þessu á vef sínum og staðfesti Vilhjálmur þetta við mbl.is. Fréttablaðið fjallaði töluvert um Hlíðamálið svokallaða í lok síðasta árs. 

Þann 10. nóvember á síðasta ári birti Vilhjálmur færslu á Facebook-síðu sinni og greindi frá því að reynt yrði á ábyrgð Fréttablaðsins vegna umfjöllun blaðsins um meintar nauðganir umbjóðanda hans.

Þar sagði hann:

„Í Frétta­blaðinu í gær, 9. nóv­em­ber 2015, var því slegið upp á forsíðu, að íbúð í Hlíðunum hafi verið út­bú­in til nauðgana. Hér er mynd­band af íbúðinni. Dæmi nú hver fyr­ir sig. Engu að síður kýs aðal­rit­stjóri Frétta­blaðsins að berja höfðinu við stein­inn og seg­ir í yf­ir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í gær að Frétta­blaðið standi við frétt­ina.

Kærðu neita al­farið sök og styðja gögn máls­ins og vitn­is­b­urðir framb­urð þeirra. Af­taka kærðu á net­inu í gær mun verða ís­lend­ing­um til vansa um ald­ir alda. Á því ber Frétta­blaðið fulla ábyrgð ásamt hlutaðeig­andi mykju­dreif­ur­um. Á þá ábyrgð mun reyna.“

Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi og aðalritstjóri 365, sagði kvöldið áður í fréttum Ríkisútvarpsins að ekkert gæfi ástæðu til að bera efnisatriði til baka.

Frétt mbl.is: Einn stendur við ummælin

Frétt mbl.is: Mun reyna á ábyrgð Fréttablaðsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert