Bílvelta á Laxárdalsheiði

Meiðsl ferðamannanna reyndust minni en talið var í fyrstu.
Meiðsl ferðamannanna reyndust minni en talið var í fyrstu. Ljósmynd/Lögreglan á Vesturlandi

Bíll erlendra ferðamanna valt í vegakantinum á Laxárdalsheiði í Dölum sl. föstudag. Ferðamennirnir misstu bílaleigubílinn útaf í lausamöl að því er greint er frá á Facebook síðu lögreglunnar á Vesturlandi.

Tveir voru í bílnum og voru þeir báðir fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús í Reykjavík, en meiðsl þeirra reyndust minni en talið var í fyrstu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert