Eldur í Glerárhverfi

Slökkviliðsmenn að störfum í Glerárhverfi síðdegis í dag.
Slökkviliðsmenn að störfum í Glerárhverfi síðdegis í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Eldur kom upp í raðhúsi í Glerárhverfinu á Akureyri nú síðdegis og var slökkvilið kallað á staðinn.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri reyndist íbúðin mannlaus. Búið er að slökkva eldinn og unnið er að reykræstingu. Upptök eldsins eru ókunn og verið er að skoða ummerki á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert