Staðfesti frávísun hópmálsóknar

Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björgólfsson

Hæstiréttur hefur staðfest frávísun hópsmálsóknar hluthafa í Landsbankanum gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni. Alls stóðu 269 einstaklingar og fyrirtæki á bak við málsóknina þegar hún var þingfest. Árni Harðar­son, stjórn­ar­maður og lögmaður Al­vo­gen, á rúm sex­tíu pró­sent þeirra hluta­bréfa sem standa málsókninni að baki.

Stefnendur töldu að Björgólf­ur hafi með sak­næm­um hætti komið í veg fyr­ir að hlut­haf­ar Lands­bank­ans fengju upp­lýs­ing­ar um um­fangs­mikl­ar lán­veit­ing­ar og einnig að hann hafi brotið gegn regl­um um yf­ir­töku.

Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði málinu frá í mars og taldi að ekki hafi verið sýnt fram á tjón þeirra sem stóðu að málsókninni. Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu í gær. Kröfugerð stefnenda hafi ekki verið nógu skýr. Hún verði ekki skilin þannig að Björgólfur hafi með athafnaleysi sínu valdið því að hlutabréf hluthafanna hafi orðið verðlaus í byrjun október 2008.

Dómur Hæstaréttar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert