Athugasemd vegna andláts ferðamanns

Landspítali háskólasjúkrahús Í Fossvogi
Landspítali háskólasjúkrahús Í Fossvogi Ómar Óskarsson

Borist hefur athugasemd frá breska sendiráðinu vegna fréttar sem birt var á mbl.is mánudaginn 2. maí af láti bresks ferðamanns, sem lést á Landspítalanum sl. helgi og er athugasemd sendiráðsins birt hér að neðan.

„Í frétt mbl.is sem birtist mánudagskvöldið 2. maí undir fyrirsögninni „Ferðamaðurinn var sendur heim“ er ranghermt, að „ekki hafi náðst samband við neinn í breska sendiráðinu.“ Breska utanríkisþjónustan hefur veitt borgaraþjónustu í þessu máli með eðlilegum hætti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert