Skora á stjórnvöld að bjarga lífríki Mývatns

Kúluskíturinn er horfinn af botni Mývatns og fram hefur komið …
Kúluskíturinn er horfinn af botni Mývatns og fram hefur komið í fréttum undanfarið að lífríki vatnsins sé í hættu vegna næringarefnaauðgunar.

 Landvernd skorar á ríkisstjórn Íslands að grípa þegar til ráðstafana til bjargar lífríki Mývatns og Laxár, en fram hefur komið í fréttum að undanförnu að lífríki vatnsins sé í bráðri hættu vegna næringarefnaauðgunar.

Í fréttatilkynningu sem Landvernd sendi frá sér segir að ofauðgunin hafi leitt til mikils vaxtar leirloss í vatninu sem dragi úr birtuskilyrðum á botni og þar með vexti þörunga sem séu undirstöðufæða vatnsins. „Kúluskíturinn er horfinn af botni, hornsílastofninn hefur aldrei verið minni og bleikjan er svipur hjá sjón miðað við það sem áður var.“

Að mati Landverndar er því mikilvægt sveitastjórnir, ríkið og ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu sameini krafta sína og grípi til allra aðgerða sem hægt er, til að draga úr áhrifum mannsins á lífríki svæðisins, ekki síst vegna skólplosunar. Þá þurfi að kanna hvaða áhrif næringarefnalosun úr brotsárum á námasvæðum vatnsins eftir kísilgúrnámið kunni að hafa á það ástand sem uppi er og til hvaða aðgerða megi þá grípa.

„Skútustaðahreppur hefur lýst því yfir að hann, einn og sér, hafi ekki fjárhagslegt bolmagn til að ráðast í nauðsynlegar aðgerðir í fráveitumálum svo draga megi úr mengun frá ferðaþjónustu og annarri starfsemi. Landvernd skorar því á ríkisstjórnina að hlaupa undir bagga með sveitarfélaginu í þeim efnum og enn fremur að tryggja fjármagn til frekari rannsókna. Aðkoma ríkisvaldsins er bráðnauðsynleg til að vernda lífríki Mývatns og Laxár,“ segir í tilkynningunni.

Lífríki Mývatns og Laxár verði ávallt að njóta vafans þegar horft er til framtíðarnýtingar á svæðinu og forðast beri alla röskun af mannavöldum á næringarefnaflæði til vatnsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert