Útboð á nýjum lóðum við gömu höfnina

Nýjar lóðir eru tilbúnar til útboðs í Vesturbugt.
Nýjar lóðir eru tilbúnar til útboðs í Vesturbugt. Styrmir Kári

Reykjavíkurborg óskar eftir aðilum til að taka þátt í forvali um nýjar lóðir í Vesturbugt við gömlu höfnina, sem tilbúnar eru til útboðs. Gert er ráð fyrir að á lóðunum verði íbúðir, atvinnuhúsnæði og bílakjallari sem vera á í umsjón Bílastæðasjóðs.

Hefur borgin óskað eftir umsóknum frá áhugasömum aðilum til að taka þátt í forvali og samkeppnisviðræðum vegna byggingarréttar og uppbyggingar á lóðum við Hlésgötu í Vesturbugt.

Viðræðurnar munu snúast um kaup á byggingarrétti og útfærslu fyrirhugaðrar uppbyggingar, að því er segir í fréttatilkynningu, auk sölu til Reykjavíkurborgar á íbúðum og bílakjallara á lóðunum. Fær kaupandi byggingarréttarins heimild  til að hanna og byggja um 170 - 176 íbúðir og atvinnu­húsnæði á jarðhæðum.

Umfang uppbyggingarinnar er af þeirri stærðargráðu að það er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

„Það er ánægjulegt að þessum áfanga skuli vera náð,“ er haft eftir Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra í fréttatilkynningu.  „Vesturbugtin er áhugaverður staður og mikilvægt að vel verði staðið að uppbyggingu. Við viljum sjá áhugaverða blöndu af íbúahúsnæði, atvinnuhúsnæði og skapandi lausnum og góðri hönnun. Ég er sannfærður um að þetta lykilverkefni eigi eftir að vekja áhuga og athygli góðra þróunar- og uppbyggingaraðila.“ 

Uppbygging í Vesturbugt er liður í þeirri stefnu að auka byggð í nálægð við vinnustaði, verslun og þjónustu miðborgarinnar. Deiliskipulag fyrir Vesturbugt gerir ráð fyrir vistvænum áherslum og vönduðum almenningsrýmum sem styðja vel við mannlíf og útivist.  Torg og stígar innan lóða verða hluti almenningsrýmis. Gróður er hluti af frágangi þeirra og hitalögn verður undir göngusvæðum. Í skilmálum eru lögð áhersla á vandað efnisval og og frágang. 

Skilyrði að hluti íbúða verði leiguíbúðir

Áherslur Reykjavíkurborgar í uppbyggingunni eru einnig að styðja við fjölbreytta byggð og til að ná fram markmiðum Reykjavíkurborgar um blandaða íbúðabyggð er gerð krafa um að 10% íbúða verði leiguíbúðir.

Undir húsunum eigi þá að vera bílageymslur með um 170 bílastæðum og verða þau í umsjá Bílastæðasjóðs Reykjavíkur til að ná fram betri nýtingu þeirra allan sólarhringinn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert