Hvergi í Evrópu er hlutfall kvenna í stjórnum stærstu skráðu fyrirtækjanna jafn hátt og hérlendis. Í tölum sem Evrópuráðið hefur tekið saman kemur í ljós að hlutfallið nær hvergi 40% að Íslandi undanskildu.
Í Danmörku er hlutfallið 26%, Finnlandi 29% og Svíþjóð 33%. Í Noregi er staðan líkust því sem hér er, þar skipa konur 39% stjórnarsæta í stærstu skráðu fyrirtækjunum.
Straumhvörf hafa orðið á síðustu árum hvað þátttöku kvenna varðar á vettvangi stjórna fyrirtækja. Þar hefur mestu ráðið löggjöf sem tryggir hvoru kyni fyrir sig að lágmarki 40% sætanna. Markaðurinn hefur hins vegar gengið lengra en löggjafinn og er hlutfallið nú í 45% þegar litið er til fyrirtækjanna 16 sem skráð eru á aðallista Kauphallarinnar, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í ViðskiptaMogganum í dag.