Húsbíll fauk út af veginum í Kollafirði um klukkan 10 í morgun. Talið er að bíllinn hafi farið eina veltu. Lögregla og sjúkralið fóru á vettvang.
Að sögn lögreglu hlaut ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, minniháttar áverka. Þess ber að geta að talsvert hvasst var á vettvangi og mun svo enn vera.
Varað við hvassvirði á Kjalarnesi