Þjóðargersemi sem verði að vernda

Mývatn.
Mývatn.

Veiðifélag Mývatns hefur þungar áhyggjur af ástandinu í lífríki Mývatns og Laxár og hefur félagið sent Sigrúnu Magnúsdóttur umhverfisráðherra bréf vegna málsins þar sem stjórnvöld hefur hvött til að beita sér fyrir því að rannsóknir á svæðinu verði efldar. 

Félagið segir mörg alvarleg teikn á lofti og nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða sem komi að gagni. Mývatn og Laxá séu þjóðargersemar sem ríkið hafi skuldbundið sig til að vernda. Ljóst sé að umfang verkefnisins er 400 manna samfélagi algerlega ofviða og því er nauðsynlegt að ríkisstjórnin bregðist hratt við að aðstoði við þetta mikilvæga mál.

Meðfylgjandi er áskorun sem var samþykkt á fundi Veiðifélags Mývatns í gær með öllum greiddum atkvæðum nema einu. Hún er svohljóðandi:

„Almennur félagsfundur í Veiðifélagi Mývatns, haldinn 4. maí, skorar á þartilbær yfirvöld að beita sér fyrir auknum fjárframlögum til rannsókna og aðgerða vegna síendurtekinna áfalla í lífríki Mývatns og Laxár. Vatnið sýnir skýr einkenni ofauðgunar. Það ástand er lítt þekkt í vötnum hér á landi en hins vegar mikið og alvarlegt vandamál víða erlendis. Á síðustu árum hefur þörungablómi (leirlos) í Mývatni aukist mjög mikið og líftími hans fram á haustið lengst. Afleiðingin er mikil eyðing á botngróðri. Formlega er viðurkennt að kúluskíturinn sé útdauður úr vatninu og annar gróður á hröðu undanhaldi. Arður af silungsveiðum hefur enginn verið í mörg ár og flestum andategundum fækkar.

Af viðbrögðum innlendra vísindamanna er ljóst að rannsóknir á þessum aukna þörungablóma, orsökum hans, afleiðingum og hvað er til úrbóta, eru allt of skammt á veg komnar. Hverjar eru raunverulegar orsakir hans og afleiðingar og hvað er hægt að gera til úrbóta?

Mývatn og Laxá eru vernduð með sérlögum og voru ásamt Þjórsárverum fyrstu svæðin sem Íslendingar tilnefndu á alþjóðlegan verndarlista Ramsar. Svæðið er þekkt um allan heim sem náttúrugersemi sem standa beri séstakan vörð um. Það væri okkur Íslendingum mikill álitshnekkir að bregðast ekki fljótt og vel við í þessu viðkvæma máli.

Nauðsynlegar rannsóknir og aðgerðir eru dýrari en svo að 400 manna samfélag standi undir kostnaðinum. Því heitir Veiðifélag Mývatns á Alþingi og ríkisstjórn að axla sinn hluta ábyrgðarinnar og sýna að lögin um vernd Mývatns og Laxár séu meira en orðin tóm. Heimamenn þurfa aðstoð, bæði í formi fjár og fagþekkingar til að möguleiki sé á að snúa þessari óheillaþróun við.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert