Beðið rannsóknar lögreglu í systramáli

Mál systrana hefur nú verið til rannsóknar í tæplega eitt …
Mál systrana hefur nú verið til rannsóknar í tæplega eitt ár. Þær voru handteknar í lok maí á síðasta ári. mbl.is/Sigurður Bogi

Tæplega fimm mánuðir eru nú síðan fjárkúgunarmál systranna Hlínar Einarsdóttur og Malínar Brand sem tengdist fyrrverandi forsætisráðherra, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, var sent úr rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til héraðssaksóknara. Enn er síðara mál þeirra í rannsókn, en þar kærði fyrrverandi samstarfsmaður Hlínar þær fyrir að hafa haft af sér 700 þúsund krónur.

Kolbrún Benediktsdóttir, saksóknari málsins, staðfestir við mbl.is að enn sé verið að bíða eftir rannsókn lögreglunnar á seinna málinu. Segir hún að málin séu eðlislík og að sakborningar eigi rétt á því að mál séu tekin saman þegar vitað er um fleiri en eitt mál í gangi á sama tíma. Segir hún rannsókn á fyrra málinu lokið, en greint var frá því í janúar að sá hluti væri kominn til héraðssaksóknara.

Syst­urn­ar Hlín Ein­ars­dótt­ir og Malín Brand voru hand­tekn­ar í lok maí á síðasta ári grunaðar um að hafa sent bréf í pósti til for­sæt­is­ráðherra og kraf­ist þess að hann greiddi þeim til­tekna fjár­hæð. Fjár­mun­ina átti að skilja eft­ir á ákveðnum stað sunn­an Valla­hverf­is­ins í Hafnar­f­irði. Þar hand­tók lög­regla kon­urn­ar.

Nokkr­um dög­um síðar voru syst­urn­ar kærðar fyr­ir aðra fjár­kúg­un. Karl­maður kærði þær fyr­ir að hafa haft af sér 700 þúsund krón­ur. Syst­urn­ar sögðu þá pen­inga vera miska­bæt­ur vegna nauðgun­ar en maður­inn á að hafa nauðgað Hlín. Eft­ir að maður­inn kærði fjár­kúg­un­ina kærði Hlín hann fyr­ir nauðgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert